Tærnar

Tærnar
(Lag og texti: Gunnar L. Hjálmarsson)

Höngum saman inn í sokkunum,
fáum stundum frelsi í sandölum,
við erum fimm og fimm á hvorum fæti
og við berjum móti óréttlæti
því að við höfum engin nöfn,
já, við höfum engin nöfn.

Við erum tærnar, engin tásu-grey,
við erum tærnar, og við segjum nei,
við viljum ekki vera á fótum nafnlausar,
við höfum okkur rétt, erum ekki kjarklausar
við viljum nöfn!
já, við tærnar viljum nöfn!

Mér finnst ekki flott að heita Stóra-tá,
ég vildi miklu frekar heita Ofur-tá.
Mér finnst það heldur klént að heita Litla-tá
og vildi miklu fremur heita Fagra-tá.
Og ég vil heita Sóltá.
Og ég vil heita Grastá.
Og ég hérna í miðjunni vill heita Hestatá!

Við þykjum ekki sætar
en kannski krútt,
við erum ekki ætar,
það þykir klúrt.
Við erum fimm og fimm á
hvorum fæti
og við berjum móti óréttlæti
því að við höfum engin nöfn,
já, við höfum engin nöfn.

Við erum tærnar, engin tásu-grey,
við erum tærnar, og við segjum nei,
við viljum ekki vera á fótum nafnlausar,
við stöndum í lappirnar, erum ekki réttlausar,
við viljum nöfn!
já við tærnar viljum nöfn!

En hvar eru tærnar?

Tærnar eru á fætinum
og fóturinn í sokknum
og sokkurinn í skónum
og skórinn er á hillunni
hillan er í skápnum
og skápurinn í húsinu
og húsið er í borginni
og borgin er í landinu.

En hvar er landið?

Landið er á jörðinni
og jörðin er í sólkerfinu
og sólkerfið er í vetrarbrautinni
og vetrarbrautin er í alheiminum
og alheimurinn er í Dings Bungs
og Dings Bungs er í nöglinni
og nöglin er á tánni
og táin er á fætinum.

Ha? En hvar eru aftur tærnar?

Tærnar eru á fætinum
og fóturinn í sokknum
og sokkurinn í skónum
og skórinn er á hillunni,
hillan er í skápnum
og skápurinn í húsinu
og húsið er í borginni
og borgin er í landinu.
Landið er á jörðinni
og jörðin er í sólkerfinu,
sólkerfið er í vetrarbrautinni
og vetrarbrautin er í alheiminum
og alheimurinn er í Dings Bungs
og Dings Bungs er í nöglinni
og nöglin er á tánni
og táin er á fætinum.

[af plötunni Dr. Gunni og vinir hans – Alheimurinn]