Þannig er það
(Lag / texti: Hafsteinn Þráinsson og Una Torfadóttir / Una Torfadóttir)
Spurðu hvað mér finnst,
þá færðu svar.
Sjáðu hvort mér finnist ekki
gaman að gefa það.
Haltu svo fastar,
kysstu mig hér,
leiddu mig lengur
því þú gerir það svo vel.
Mér var sagt ég ætti skilið
að faðmast svona oft
og ég vonaði og ég trúði
að bráðum yrði allt gott
en mig óraði ekki fyrir
að það kæmi svona hratt
en þannig er það,
takk fyrir að
kyssa mig og faðma.
Æ má ég sýna
allt sem ég er?
Hvernig er best að byrja
að segja frá sjálfum sér?
Elska að skrifa,
les ekki nóg,
sem allt of sjaldan,
hata lakkrís og tómatsósu.
Mér var sagt ég ætti skilið
að hlæja svona oft
og ég vonaði og ég trúði
að bráðum yrði allt gott
en mig óraði ekki fyrir
að það kæmi svona hratt
en þannig er það,
takk fyrir að
segja með mér brandara.
[af plötunni Una Torfa – Sundurlaus samtöl]














































