Þjóðhátíðarsöngur (Þjóðhátíðarlag 1938)

Þjóðhátíðarsöngur (Þjóðhátíðarlag 1938)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson))

Hefjum nú, bræður, vorn hátíðarsöng;
hátt er til veggja í salnum.­
Ungir og gamlir í iðandi þröng,
allir sér skemmta í Dalnum.

Allir inn í Dal­, þér ungra sveina val,
og ekki mega stúlkurnar sér gleyma.
og ekkert getur hugann betur hresst.

Kyrjum gleðilag á Köldubraut í dag
þótt kuldalegt sé nafnið, það ei sakar.
Brosir hæð og laut­ nú burt með hverja þraut
og bregðum oss með söng á ástarbraut.

Þá minnkar ekki fjörið, þegar dagsins birta dvín
og dalinn sveipar kvöldið húmsins klæði.
Og fagurt er um lágnættið, er bálið bjartast skín
í brekkunum þó minnki heldur næði.

Allir inn í dal,­ þér ungra sveina val,
og ekki mega stúlkurnar sér gleyma.
Fagra tjalda­þröng­ með fána á hverri stöng
nú fyllum vér með þjóðhátíðarsöng.

[engar upplýsingar um lagið á plötum]