Þjóðhátíðarvísa (Þjóðhátíðarlag 1948)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / höfundur ókunnur)
Þegar kvöldið kátt
kyssir dag og nátt,
mörgum yljar minning heit.
Út við ystu sker
aldan leikur sér,
kveður sólin klettareit.
Þegar rökkvar, dátt er hér í Dalnum,
dansinn stiginn,
óma hlátrasköll.
Söngvar hljóma frjálst í fjallasalnum.
Fléttast armar,
bjartir bjarmar
birtu slá um tind og völl.
Hjörtun ung og ör
öll á sigurför,
hefja vinir heillaskál.
Meðan stjarna stök
stikar himinvök,
líður nótt við leyndarmál.
[engar upplýsingar um lagið á plötum]














































