Þrjár mínútur

Þrjár mínútur
(Lag og texti: Gunnar L. Hjálmarsson)

Dagarnir vilja daga uppi
og kvöld rímar við kvöl,
fuglinn þinn kann ekki að syngja
og hér er of heitt eða of kalt,
þrjár mínútur í lífi þínu líða.
Það er kannski auga á himnum
en það horfir örugglega ekki á þig – hvað þá mig.
Vakna dauður á morgnana,
hvert skipti eins og milljón sjálfsmorð.
Mogginn fullur af líkum
og svo kemur röðin að þér,
þrjár mínútur í lífi þínu líða.

[engar upplýsingar um lagið á plötum]