Þú sjálf

Þú sjálf
(Lag / texti: Vignir Snær Vigfússon / Birgitta Haukdal)

Ástand hugans forritað af þeim,
hugsanirnar mótaðar um leið.
Skilaboðin skýr um hvað þú átt,
láttu engan segja hvað þú mátt.

Ég vil ekki vera svona,
ekki sitja‘ og bíða‘ og vona
því ég vil bara vera ég, vera ég sjálf.

Í gegnum skrápinn finn ég hjartsláttinn,
tímabært að hleypa fleiru inn.
Sjálfstæð hugsun, allt breytir um lit,
finn að opnast nýtt skilningarvit.
(Láttu mig vera, vil vera frjáls)

Ég vil ekki vera svona,
ekki sitja‘ og bíða‘ og vona
því ég vil bara vera ég, vera ég sjálf.

[m.a. á plötunni Írafár – Allt sem ég sé]