Þúsund hjörtu (Þjóðhátíðarlag 2023)

Þúsund hjörtu (Þjóðhátíðarlag 2023)
(Lag og texti: Gauti Þeyr Másson og Þormóður Eiríksson)

Ég er með vorboða í vasanum
þegar ég rölti af stað með þér.
Ég elska‘ að hlaða‘ í minningar
með því að gleyma mér með þér.

Hvað er betra en kvöldin
þegar kæruleysið tók völdin,
það er stundin sem ég fæ aðeins með þér.

Viðlag
Þegar þúsund hjörtu slá í takt,
að þú sért hjá mér, það er allt.
Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
þegar þúsund hjörtu slá í takt.

Ég finn orkuna magnast, margfaldast,
dagur kveður, sólin sest.
Þúsund andlit allt í kringum mig
en þitt bros gerir mest.

Hvað er betra en höndin
þegar nóttin kemur köld inn,
ég er þú og ég get svarið að þú ert ég.

Þegar þúsund hjörtu slá í takt,
að þú sért hjá mér, það er allt.
Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
þegar þúsund hjörtu slá í takt.

Ég er bergið, þú ert mosinn,
þú ert eldfim, ég er blossinn.
Þarf að segja meir?
Þegar við hverfum inn í hópinn
þá gleypir okkur nóttin
annað kvöld á Heimaey.

Þegar þúsund hjörtu slá í takt,
að þú sért hjá mér, það er allt.
Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
þegar þúsund hjörtu slá í takt.

Þegar þúsund hjörtu slá í takt (þarf að segja meir?)
Að þú sért hjá mér, það er allt (Hér á Heimaey).
Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
þegar þúsund hjörtu slá í takt.

[af smáskífunni Emmsjé Gauti – Þúsund hjörtu]