Tugthússaría
(Lag / texti: Jón Múli Árnason / Jónas Árnason)
Ég man það æ hve mjög þú kysstir mig
á munninn beint eins oft og lysti þig.
En svo dró upp ský og skjótt þú misstir mig
í tugthúsið.
Í mínum ástarörmum hélt ég þér
og í mér hjartað stökk og velti sér
uns lögreglan kom eitt kvöld og skellti mér
í tugthúsið.
Í dimmum klefa dreymir mig
dag og nótt um þig.
Ástarhitinn í mér nálgast óðum hundrað stig.
Mitt unga brjóst af angist þrungið er
og í mér hjartað sundursprungið er.
Ó, grimm er sú hönd sem hefur stungið mér
í tugthúsið.
[engar upplýsingar um lagið á plötum]














































