Um mig og þig

Um mig og þig
(Lag / texti: Hafsteinn Þráinsson og Una Torfadóttir / Una Torfadóttir)

Ég spurði hvort
við gætum lifað af
í kúlu þar sem ljós kemst inn
og ekkert út.
Hvort við gætum
skapað okkur heim
sem væri okkur nóg
og skrúfað fyrir stút.

Ég er ljóðskáld,
þú ert líffræðingur,
sköpum þrúgusykur,
ljóstillífum,
með ljósi, vatni og orðum.
Þarf nokkuð meira til
en ást og yl?

Við prófuðum
að skrúfa aðeins fastar,
faðmast aðeins lengur
og verða aftur hlýtt.
En svo vaknar
spurning um hvað sé fyrir utan
hvort að það sé nóg
að þekkja þetta eitt.

Ég er týnd sál,
hélt ég gæti fundist,
ef ég bara stæði kyrr
á vísum stað
með ljósi vatni og orðum,
þyrfti ekkert meira til
en mig og þig.

Ég spurði hvort
ég mætti skrúfa frá,
kíkja síðan út,
koma aldrei aftur inn.
Ég spurði hvort
þér yrði nokkuð kalt,
hvort það væri í lagi
að þú yrðir ein.

Ég þarf að leita,
þetta er ekki heima,
þú átt betra skilið
en týndu litlu mig.
En þú mátt eiga ljósið,
vatn og orðin mín
ef ég fæ þín,
ef ég fæ þín.

[af plötunni Una Torfa – Sundurlaus samtöl]