Ungi vinur (Þjóðhátíðarlag 1966)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)
Ef viltu ungi vinur að
veröldin sé þín
þá gakktu fram í gleði
og gæfan við þér skín.
Syng þú um sumarblæinn
er sól af himni hlær
og blæinn hlýja‘ og blómin
í birtunni sem grær.
Og þó máttu muna
mannsbarnið valt
að ástin er það eina
sem umber þér allt.
Ef viltu ungi vinur
að veröldin sé þín
þá gakktu fram í gleði
og gæfan við þér skín.
Og ef í álinn syrtir
og engin handa skil
þá reynist best að brosa
og brátt mun rofa til.
Og þó máttu muna
mannsbarnið valt
að ástin er það eina
sem umbert þér allt.
Ef viltu ungi vinur
að veröldin sé þín
þá gakktu fram í gleði
og gæfan við þér skín.
Og ef í álinn syrtir
og engin handa skil
þá reynist best að brosa
og brátt mun rofa til.
[af smáskífunni Íris Guðmundsdóttir og Árni Johnsen – Ungi vinur]














































