Út í Elliðaey (Þjóðhátíðarlag 1980)

Út í Elliðaey (Þjóðhátíðarlag 1980)
(Lag og texti: Valur Óskarsson)

Út í Elliðaey situr lítill lundi,
leggur kollhúfur og horfir á
þegar bátar sigla hægt á hafið
höfninni í Vestmannaeyjum frá.
En niðri á bryggju nokkrir strákar standa,
stara hugfangnir á karlana
sem landa fiski, bölva hátt og hrópa,
en horfa stundum blítt á peyjana.

Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.

Þeir minnast þeirra daga, er drengir sjálfir voru
og dreymir oft á nóttunni um það,
þegar lundapysjur lentu í bænum
og leiðangur af krökkum hélt af stað,
því bjarga þurfti í hvelli öllum ungum
og allir kepptust við að finna mest.
Já, æskuárin mættu endast betur,
því æskan er í lífi voru best.

Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.

Út í Elliðaey situr lítill lundi,
lúinn eftir heitan sumardag.
Allt í kring eru sællegir svartfuglar
að syngja eigið þjóðhátíðarlag.
Það syngur þarna hver með sínu nefi
og sumir stíga villtan diskódans.
Því allir eyjafuglar vilja tolla í tísku
og tæpast færu að dansa Óla skans.

Það syngur þarna hver með sínu nefi
og sumir stíga villtan diskódans.
Því allir eyjafuglar vilja tolla í tísku
og tæpast færu að dansa Óla skans.

Út í Elliðaey, út í Elliðaey, út í Elliðaey.

[m.a. á plötunni Í Dalnum – ýmsir]