Við heimtum aukavinnu
(Lag / texti: Jón Múli Árnason / Jónas Árnason)
Við heimtum aukavinnu!
Við heimtum ennþá meiri aukavinnu!
Því ef við einhvern tímann eigum frí
fylgir því
fyllirí
og hopp og hí
um borg og bý.
Við heimtum aukavinnu!
Við heimtum ennþá meiri aukavinnu!
Því aukavinnan blessuð bætir og kætir oss,
styrkir og stærir og
endurnæring okkur færir:
Ó, gefðu, Guð,
oss meira puð!
Við heimtum aukavinnu!
Við heimtum ennþá meiri aukavinnu!
Við viljum fá að djöflast dag og nótt
títt og ótt,
græða gnótt;
það eflir sálarþrek og þrótt.
Við heimtum aukavinnu!
Við heimtum ennþá meiri aukavinnu!
Því það er okkar æðsta sæla að þræla og
þræla og þræla
og þræla fram í rauðan dauðann.
Ó, gefðu, Guð,
oss meira puð!
[m.a. á plötunni Rjúkandi – Rjúkandi]














































