Viltu elska mig á morgun (Þjóðhátíðarlag 2010)
(Lag og texti: Kristján Kristjánsson (KK)
Viltu elska mig á morgun eins og ég elska þig í dag?
Eins og sumarkvöld eins og ljúflings lag.
Viltu sigla með mér byrinn og standa uppí brú?
Milli skers og báru, ég og þú.
Stefnum uppá Eyju einn fagran sumardag,
og endum upp í brekku og syngjum saman lag.
Við höldum heim til Eyja og syngjum saman lag
um ástina og lífið einn fagran sumardag.
Viltu sigla með mér byrinn og standa upp í brú
milli skers og báru, ég og þú.
Úúúúúú…
Þú hvíslar að mér blómum, þú hvíslar og ég skil.
Svo elskumst við í alla nótt og kannski soldið til.
Höldum heim til Eyja, syngjum saman lag
um ástina og lífið og fagran sumardag.
Viltu sigla með mér byrinn og standa upp í brú
Milli skers og báru, ég og þú.
Ég elska þig á morgun, ég elska þig í dag,
eins og sunnanblær, eins og ljúflings lag.
Úúúúúú…
Ég elska þig á morgun, ég elska þig í dag
eins og sunnanblær, eins og ljúflings lag.
Úúúúúú…
Eins og ljúflings lag.
[af smáskífunni KK – Viltu elska mig á morgun]














































