Vornótt í Eyjum (Þjóðhátíðarlag 1976)

Vornótt í Eyjum (Þjóðhátíðarlag 1976)
(Lag / texti: Sigurður Óskarsson / Þorsteinn Lúther Jónsson)

Í Eyjunum lífsgleðin ljómar
er ljósbjört þar vornóttin skín,
og lífsvakans aflmiklu ómar
þeir ástfangnir berast til þín.

Fuglarnir kliða við kletta
og kafa í sædjúpin köld,
en hafaldan lognværa létta
sér leikur við þá í kvöld.

Ég horfi á himininn loga
hafið og spegilslétt sund,
við heiðríkan himinsins boga
á hrífandi góðviðrisstund.

Já Eyjan mín brosið þitt bjarta
og blíðan þín heillaði mig.
Ég gaf þér strax hug minn og hjarta
og hét því að elska þig.

Sóló

Ég horfi á himininn loga
hafið og spegilslétt sund,
við heiðríkan himinsins boga
á hrífandi góðviðrisstund.

Já Eyjan mín brosið þitt bjarta
og blíðan þín heillaði mig.
Ég gaf þér strax hug minn og hjarta
og hét því að elska þig.

Ég gaf þér strax hug minn og hjarta
og hét því að elska þig.

[af plötunni Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar – Steini Spil frá Selfossi]