Vorvísa [3] (Þjóðhátíðarlag 1950b)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson)
Ég heyri vorið vængjum blaka
og vonir mínar undir taka
því ég er barn með sumar sinni
og sólarþrá í vitund minni.
Er blikar sær undr bláu hveli
og blærinn vaggar smáu stéli
og ástin skín úr augum þínum,
ég uni glaður kjörum mínum.
Þegar sígur sólin rauð,
sundin gulli þekur,
í hjarta mínu á ég auð
sem enginn frá mér tekur.
Ég heyri vorið vængjum blaka
og vonir mínar undir taka
því ég er barn með sumar sinni
og sólarþrá í vitundm inni.
[m.a. á plötunni Sextett Ólafs Gauks – Fjórtán lög frá þjóðhátíð Vestmannaeyja eftir Oddgeir Kristjánsson]














































