
Mjöll Hólm
Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar:
Það er söngkonan Mjöll Hólm (Friðbjarnardóttir) sem fagnar stórafmæli í dag en hún er áttræð. Flestir minnast laga hennar, Jón er kominn heim og Mamy blue sem komu út á litlum plötu á sínum tíma en hún hefur einnig gefið út tvær breiðskífur í eigin nafni. Mjöll hefur sungið með fjölda hljómsveita í gegnum tíðina, hér eru nefndar sveitir eins og Opus, Hljómsveit Elfars Berg, Hljómsveit Karls Jónatanssonar, Venus, Goðgá, Stefdís og Á rás eitt.
Vissir þú að þegar styttan af Leifi Eiríkssyni var vígð árið 1932 urðu þau mistök að helmingur liðsmanna Lúðrasveitar Reykjavíkur lék íslenska þjóðsönginn á meðan hinn helmingurinn lék bandaríska þjóðsönginn – á sama tíma.














































