
Hljómsveit Guðmundar R. Einarssonar 1953
Trommuleikarinn Guðmundur R. Einarsson starfrækti hljómsveit eða öllu heldur hljómsveitir því hugsanlega var um að ræða þrjár hljómsveitir á þremur árum á sjötta áratug síðustu aldar.
Haustið 1952 lék hljómsveit sem kennd var við Guðmund, með Marie Bryant söngkonu og Mike McKenzie píanóleikara (og söngvara) á tónleikum í Austurbæjarbíói en auk Guðmundar skipuðu Eyþór Þorláksson gítarleikari og Jón Sigurðsson bassaleikari sveitina.
Næsta sumar, 1953 starfrækti Guðmundur hljómsveit í eigin nafni í Þórscafe og lék hún um nokkurra mánaða skeið eða allt fram í nóvember, meðlimir þeirrar sveitar voru Guðmundur Vilbergsson harmonikkuleikari, Karl Lilliendahl gítarleikari og Steinþór Steingrímsson píanóleikari auk Guðmundar að sjálfsögðu. Ragnar Bjarnason söng eitthvað með sveitinni um sumarið en einnig sungu nokkrir erlendir gestir með henni s.s. Bubby Lundström og Remi Skappel. Þessi sveit var bæði auglýst undir nafninu Hljómsveit Guðmundar R. Einarssonar og Guðmundur R. Einarsson og hljómsveit.
Árið 1954 var Guðmundur aftur með hljómsveit sem lék í Þórscafe en því miður er engar upplýsingar að finna um stærð hennar, meðlimi og hljóðfæraskipan.














































