Afmælisbörn 29. júlí 2024

Ingi Gunnar Jóhannsson

Þrír tónlistarmenn koma við sögu í afmælisdagbók Glatkistunnar að þessu sinni:

Jón Gústafsson fyrrum tónlistar- og fjölmiðlamaður er sextíu og eins árs gamall í dag. Jón var þekktastur á níunda áratug síðust aldar sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi en hann sá um tónlistarþætti eins og Rokkarnir geta ekki þagnað og Popphólfið, hann lék einnig á hljómborð, trommur og fleiri hljóðfæri í hljómsveitum eins og Gaulverjum, Afris og Sonus futurae auk þess að gefa út sólóskífu.

Arnór Dan Arnarson söngvari Agent fresco fagnar einnig afmæli á þessum degi en hann er þrjátíu og níu ára gamall. Agent fresco er auðvitað í fremstu röð en Arnór hefur einnig starfað með tónlistarmönnum eins og Ólafi Arnalds, Björgvini Halldórssyni og Retro Stefson svo dæmi séu tekin.

Þá á Ingi Gunnar Jóhannsson sextíu og sex ára afmæli í dag. Ingi Gunnar var auðvitað í Hálfu í hvoru og Islandicu en hefur einnig starfað með Vísnavinum, Texastríóinu og Vox, og poppað reglulega upp í undankeppnum Eurovision og Landslaginu einnig þegar það var og hét. Ingi Gunnar hefur sent frá sér eina sólóplötu, Undir fjögur augu (1992).

Vissir þú að frasinn „Meira pönk – meira helvíti!“ kemur frá Óttarri Proppe og hljómsveitinni Drullu?