Hljómsveit Gunnars Tryggvasonar var sett saman og starfrækt til að leika í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri (Sjallanum) en þar var hún ráðin til starfa sem húshljómsveit til eins árs vorið 1975.
Meðlimir sveitararinnar voru þeir Gunnar Tryggvason hljómsveitarstjóri sem lék að öllum líkindum á gítar, Árni Friðriksson trommuleikari, Stefán Baldvinsson [?], Gunnar Ringsted gítarleikari og Þorsteinn Kjartansson saxófónleikari.
Sveitin starfaði fram á vorið 1977.














































