Hljómsveit Hilmars Sverrissonar (1989-2006)

Tónlistarmaðurinn Hilmar Sverrisson hefur í gegnum tíðina starfrækt hljómsveitir í eigin nafni samhliða því að vera einyrki á sviði eða starfa með stökum tónlistarmönnum og -konum eins og Má Elísyni, Ara Jónssyni, Vilhjálmi Guðjónssyni, Helgu Möller og Önnu Vilhjálms. Stundum hefur slíkt samstarf tveggja samstarfsmanna reyndar verið kallað Hljómsveit Hilmars Sverrissonar.

Hilmar starfrækti líklega í fyrsta sinn hljómsveit í eigin nafni árið 1989 þegar hann var með danshljómsveit í Danshúsinu í Glæsibæ, í þeirri sveit voru auk Hilmars sem lék á hljómborð og söng þeir Ólafur Kolbeinsson trommuleikari og Sigurður Árnason bassaleikari en Anna Vilhjálmsdóttir og Einar Júlíusson sungu með sveitinni, Anna mun meira enda hafa þau Hilmar og Anna starfað mikið saman. Þessi sveit starfaði fram yfir áramótin 1989-90 að minnsta kosti. Árið 1992 var Hilmar einnig með hljómsveit á veitingastaðnum Naustinu en ekki liggja fyrir upplýsingar um hverjir skipuðu hana.

Hilmar bjó um tíma fyrir norðan á tíunda áratugnum enda Skagfirðingur að uppruna og þar starfrækti hann hljómsveit sem bar nafnið Norðan 3 en hann var einnig með sveit þar ásamt Hlyni Guðmundssyni gítarleikara og Ásdísi Guðmundsdóttur söngkonu sem hafði einmitt starfað með honum í Norðan 3. Um aldamótin var Hilmar aftur kominn suður til Reykjavíkur og þá starfrækti hann um tíma sveit með Pétri Hjálmarssyni bassaleikara og Önnu Vilhjálms, sú sveit lék mest í Glæsibæ framan af en síðar á stöðum eins og Catalínu í Kópavogi, Rauða ljóninu, Fjörukránni í Hafnarfirði og Kringlukránni, og reyndar einnig úti á landsbyggðinni s.s. á Akureyri, allt til 2006 – ekki liggur þó fyrir hverjir skipuðu sveitina með honum en söngvarar eins og Einar Júlíusson, Helga Möller og fleiri komu fram með sveitinni. Hilmar var um tíma einnig viðloðandi hljómsveitirnar Kelta og Hrafna á þessum tíma en það eru aðrar sveitir.