Hljómsveit Jóhannesar (1937)

Glatkistan óskar eftir upplýsingum um Hljómsveit Jóhannesar sem lék fyrir dansi að Álafossi vorið 1937.

Engar frekari heimildir er að finna um þessa sveit eða hvað Jóhannes er hér að ræða en hér er helst giskað á harmonikkuleikarann Jóhannes Gunnar Jóhannesson en hann hafði starfrækt hljómsveit í eigin nafni fjórum árum fyrr.

Allar nánari upplýsingar um þessa sveit væru því vel þegnar.