
Oddur Björnsson
Tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum eru á skrá Glatkistunnar í dag:
Tónlistarmaðurinn Sigfús E. Arnþórsson er sextíu og sjö ára gamall í dag. Sigfús lék með fjölda hljómsveita á árum áður, einkum norðanlands en það voru sveitir eins og Skýborg, Anus, Klassík, Namm, Tíglar, Árný trúlofast, Flugfrakt, Skarr og Mörðuvallamunkarnir en einnig hefur hann gefið út sólóplötur. Hann er þó líklega þekktastur fyrir að hafa samið lagið Endurfundir sem Upplyfting gerði vinsælt hér í eina tíð.
Þá fagnar básúnu- og slagverksleikarinn Oddur Björnsson sextíu og fimm ára afmæli sínu í dag. Oddur er af básúnuættum, hann nam hér heima og í Bandaríkjunum og hefur leikið með stærri hljómsveitum sem minni s.s. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Básúnukvartettnum, Létt- og stórsveit Ríkisútvarpsins, Big band ´81 og Hljómskálakvintettnum svo nokkrar séu nefndar en leik hans má einnig heyra á tugum hljómplatna.
Vissir þú að sú hljómsveit sem hefur oftast leikið á Þjóðhátíð Eyjamanna er Lúðrasveit Vestmannaeyja?














































