Glatkistan óskar eftir upplýsingum um hljómsveit sem í auglýsingu er kölluð Hljómsveit Jóns Pálssonar en hún lék á dansleik tengdum árshátíð Iðnskólans sem haldin var í Næturklúbbnum (síðar Glaumbæ) í febrúar 1962.
Ekki er útilokað að um einhvers konar villu sé að ræða, að hér eigi annað hvort að vera hljómsveit Jóns Páls [Bjarnasonar] eða Guðjóns Pálssonar en þeir starfræktu báðir hljómsveitir um þetta leyti, en engar heimildir er hins vegar að finna um Jón Pálsson sem gæti hafa verið tónlistarmaður með danshljómsveit á þeim tíma.














































