Hljómsveit Kjartans og Sigurjóns (1972-73)

Hljómsveit Kjartans og Sigurjóns

Dúett sem kallaði sig Hljómsveit Kjartans og Sigurjóns vakti töluverða athygli veturinn 1972 til 73 þegar hann kom fram víða um höfuðborgarsvæðið á þjóðlagakvöldum og skemmtunum framhaldsskólanna en um einhvers konar þjóðlagadúett var að ræða sem flutti frumsamda tónlist og texta, og tók sig líklega ekki of alvarlega.

Þeir Kjartan og Sigurjón léku á gítar (e.t.v. báðir) og munnhörpu auk þess að syngja en annað liggur ekki fyrir um þá félaga, s.s. hver full nöfn þeirra voru.

Óskað er eftir nánari upplýsingum um Kjartan og Sigurjón.