Afmælisbörn 16. október 2024

Jóhanna Guðrún

Tvær tónlistarkonur koma við sögu á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Jóhanna Guðrún (Jónsdóttir) söngkona er þrjátíu og fjögurra ára gömul í dag. Jóhanna Guðrún var barnastjarna og höfðu komið út þrjár plötur með henni þegar hún var aðeins tólf ára gömul. Hún gaf einnig út plötuna Butterflies and Elvis árið 2008 undir nafninu Yohanna en hún er að sjálfsögðu þekktust fyrir árangur sinn í Eurovision keppninni 2009 þegar hún söng lagið Is it true? inn í hjörtu Evrópubúa og endaði í öðru sæti keppninnar. Jóhanna Guðrún er meðal ástsælustu söngkvenna landsins.

Tónlistarkonan Sigurlaug Gísladóttir á einnig afmæli á þessum degi en hún fagnar fertugsafmæli í dag sem auðvitað flokkast sem stórafmæli. Sigurlaug sem er þekktari undir nafninu Mr. Silla hefur gefið út tvær plötur, aðra reyndar í félagi við Mongoose. Hún vakti þó fyrst athygli þegar hún sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna 2004 ásamt Sunnu Ingólfsdóttur en var síðan í sveitum eins og Múm, hún hefur einnig unnið tónlist í samvinnu við annað tónlistarfólk s.s. Snorra Helgason, Cheek montain thief, Ólöfu Arnalds og Hjálma.

Vissir þú að leikarinn Róbert Arnfinnsson var harmonikkuleikari í hljómsveitinni Black Boys á Siglufirði á árum síðari heimsstyrjaldarinnar?