Hljómsveitakeppni Stundarinnar okkar [tónlistarviðburður] (1984-85)

Snúran Snúran í sjónvarpssal

Veturinn 1984 til 85 stóð Stundin okkar í Ríkissjónvarpinu fyrir þeirri nýbreytni að halda úti hljómsveitakeppni og vakti hún nokkra athygli.

Sjö sveitir munu hafa tekið þátt í hljómsveitakeppninni en Glatkistan hefur aðeins upplýsingar um fjórar þeirra – Double 03, Snúran Snúran úr Garðabæ, Ofbirtu frá Akranesi og Hornsteina frá Höfn í Hornafirði. Enn fremur vantar upplýsingar um hvaða hljómsveit sigraði keppnina en Ragnhildur Gísladóttir afhenti verðlaunin í henni í mars 1985, auk Ragnhildar voru Ólafur Þórðarson og Gunnlaugur Briem í dómnefnd keppninnar.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um þessa hljómsveitakeppni Stundarinnar okkar.