Afmælisbörn 20. nóvember 2024

Bergþór Smári

Í dag eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar.

Tónlistarmaðurinn og tónskáldið Helgi Hrafn Jónsson er fjörutíu og fimm ára gamall. Helgi Hrafn kemur af Seltjarnarnesinu þar sem hann steig sínu fyrstu tónlistarspor með hljómsveitinni Bossanova og Lúðrasveit æskunnar en hefur einnig starfað með Aton og fleiri sveitum. Hann nam básúnuleik í Austurríki en spilar á miklu fleiri hljóðfæri og á að baki nokkrar sólóplötur, auk þess þess sem hann hefur leikið inn á fjölda platna með tónlistarmönnum eins og Mugison, Leaves, Hjaltalín, Sigur rós, Sing Fang, Valgeiri Sigurðsson, Amiinu og Sprengjuhöllinni. Hann hefur unnið til fjölda viðurkenninga fyrir tónlist sína.

Bergþór Smári gítarleikari og söngvari er fimmtugur í dag og á því stórafmæli. Hann hefur töluvert leikið með blússveitum en hefur einnig starfað sem sólólistamaður og með Örlygi bróður sínum, og á að baki eina sólóplötu. Meðal hljómsveita sem Bergþór Smári hefur leikið með má nefna Mood, Bundið slitlag, Dalvik All Star, Kirsuber, SRV og Skóbúð Imeldu Marcos. (SIM).

Vissir þú að Sigríður Thorsteinsson var þekkt sópran söngkona og kórstjórnandi í samfélagi Vestur-Íslendinga í Kanada á fyrri hluta 20. aldarinnar?