Hljómsveit Sigrúnar Grendal (1996)

Vorið 1996 fór sönghópurinn Móðir Jörð um höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina með tónleikaröð en með hópnum lék tríó sem kennt var við píanóleikara hennar Sigrúnar Grendal, meðlimir sveitarinnar voru auk Sigrúnar þeir Kormákur Geirharðsson trommuleikari og Jón Steinþórsson (Jón skuggi) bassaleikari.

Sveitin virðist eingöngu hafa starfað í tengslum við þessa tónleika Móður Jarðar.