Afmælisbörn 17. desember 2024

Sólveig Matthildur

Tvö tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu á lista Glatkistunnar í dag:

Tónlistarkonan Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir fagnar stórafmæli en hún er þrítug á þessum degi. Hún er hljómborðsleikari í hljómsveitinni Kælunni miklu sem sigraði Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins 2013 og hefur einnig gefið út nokkrar breiðskífur, Sólveig hefur einnig sjálf sent frá sér sólóplötur og fjölda smáskífna.

Ágúst Ragnarsson tónlistarmaður á sjötíu og tveggja ára afmæli í dag. Ágúst hefur sent frá sér sólóefni og plötu í samstarfi við bróður sinn undir nafninu Jarðlingar en fáir hafa líklega starfað með jafn mörgum hljómsveitum og Ágúst, hér eru nefndar fáeinar af handahófi: Start, Fánar, Dansbandið, Flashback, Bendix, Deildarbungubræður, Foss, Freeport, Rockola, Sálin, Landshornarokkarar, Ópera og Friður.

Vissir þú að Óli Björn og Úlfur Eldjárn gáfu út jólaplötuna Jólalög framtíðarinnar árið 1999 í hundrað eintökum?