Afmælisbörn 18. desember 2024

Jósef Magnússon

Í dag eru þrjú nöfn á afmælislista Glatkistunnar

Það er Sigurlaug Thorarensen sem einnig gengur undir sólólistanafninu Sillus en hún er þrjátíu og fjögurra ára gömul á þessum degi. Hún hefur gefið út tilraunakennt raftónlistarefni og unnið tónlist fyrir sjónvarp en einnig starfað með hljómsveitinni BSÍ á plötu sem og starfað með öðru tónlistarfólki s.s. Hermigervli, sem reyndar er bróðir hennar.

Jósef Gottfreð Blöndal Magnússon flautuleikari átti einnig afmæli þennan dag en hann lést árið 2021. Jósef (f. 1933) sem var giftur Ruth L. Magnússon söngkonu, nam í London og fékkst lengi við tónlistarkennslu en lék jafnframt oft einleik á tónleikum m.a. með Musica da camera og Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hann starfaði lengi með. Hann kom aukinheldur við sögu á fjölda hljómplatna sem bæði höfðu að geyma klassíska tónlist og af léttara taginu.

Og að síðustu er hér nefndur Keflvíkingurinn Ingibergur Þór Kristinsson (fæddur á þessum degi 1949) en hann lést árið 2022. Ingibergur lék á árum áður á trommur en í seinni tíð á gítar og bassa í fjölmörgum hljómsveitum, hér má nefna sveitir eins og Júnísvítan, Hinir guðdómlegu Neanderdalsmenn, Hippar í handbremsu, Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, Berkir og Útkjálkarnir.

Vissir þú að lagið Hinsegin jólatré með Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur er líklega eina jólalagið sem fjallar um samkynhneigt jólatré?