Hljómsveit Sveins Ólafssonar (1944 / 1954-59)

Sveinn Ólafsson fiðlu- og saxófónleikari starfrækti nokkrar hljómsveitir í kringum miðja síðustu öld en þær voru allar skammlífar og hugsaðar sem skammtímaverkefni.

Fyrsta Hljómsveit Sveins Ólafssonar var reyndar starfandi á Akureyri sumarið 1944 á Hótel Norðurlandi, meðlimir þeirrar sveitar voru Jóhannes Þorsteinsson (Jonni í Hamborg) píanóleikari, Karl Karlsson trommuleikari, Guðmundur Finnbjörnsson saxófón- og fiðluleikari, Magnús Guðjónsson harmonikkuleikari og svo Sveinn sjálfur en hún starfaði aðeins í nokkra mánuði áður en Sveinn fór suður með með flesta liðsmenn sína og lék á Hótel Birninum í Hafnarfirði um haustið. Ný sveit var hins vegar starfrækt í nafni Jóhannesar á Hótel Norðurlandi.

Um áratugur leið þar til næsta sveit Sveins leit dagsins ljós, það var haustið 1954 og lék sú sveit m.a. í Selfossbíói. Í kjölfarið léku sveitir í hans nafni á árlegum kabarettsýningum í Austurbæjarbíói og víðar, sem ýmis voru kallaðir sjómannadagskabarett eða blaðamannakabarett og allt til ársins 1959. Engar upplýsingar er hins vegar að finna um meðlimi þeirra sveita og hljóðfæraskipan en líklegt er að þær hafi haft mismunandi mannskap á að skipa.