Hljóp á snærið (1994-2016)

Hljóp á snærið

Hljómsveitin Hljóp á snærið starfaði um ríflega tuttugu ára skeið í Sandgerði, líklega þó ekki samfleytt en sveitin var lengi fastagestur á bæjarhátíðinni Sandgerðisdögum og lék reyndar víðar annars staðar um landið.

Hljóp á snærið virðist hafa komið fram á sjónarsviðið fyrst í kringum 1994 og lék þá bæði í heimabæ sínum Sandgerði sem og í Vestmannaeyjum. Sveitin var framan af líklega fjögurra manna og voru bræðurnir Helgi og Birgir Haraldssynir meðal þeirra en aðrar upplýsingar er ekki að finna um meðlimi hennar eða hljóðfæraskipan og er því hér með auglýst eftir þeim upplýsingum.

Hljómsveitin virðist hafa starfað tiltölulega samfleytt fram að aldamótum en lengra líður á milli þess sem sveitin lék eftir það, hún starfaði þó allt til ársins 2016 og var orðin að tríói árið 2004 að minnsta kosti.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um hljómsveitina Hljóp á snærið.