
Hollívúdd
Hljómsveit sem hlaut nafnið Hollívúdd (Hollywood) starfaði um nokkurra mánaða skeið árið 2004, herjaði að einhverju leyti á ballmarkaðinn um sumarið og sendi frá sér lag á safnplötu.
Hollívúdd kom fram á sjónarsviðið um vorið 2004, lék þá á Gauki á Stöng en þar kom leikarinn og söngvarinn Björgvin Franz Gíslason fram með sveitinni. Í kjölfarið kom svo út lag með sveitinni á safnplötunni Svona er sumarið 2004 en þar var á ferð gamli Model-slagarinn Lífið er lag. Lagið hlaut reyndar ekki mikla athygli og ekki er að sjá að sveitin hafi leikið mikið opinberlega en hún mun hafa lagt megin áherslu á íslenskt efni frá áttunda og níunda áratugnum.
Meðlimir sveitarinnar voru þeir Hallgrímur Ólafsson og Guðjón Davíð Karlsson (Gói) söngvarar, Leifur [?] hljómborðsleikari, Gunnar Þór Jónsson gítarleikari, Jón Ómar Erlingsson bassaleikari og Baldvin A.B. Aalen trommuleikari, þeir þrír síðast töldu komu úr hljómsveitinni Sóldögg sem um það leyti var að leggjast í dvala. Hljómborðsleikarinn Ríkharður Arnar og söngkonan Telma Ágústsdóttir komu við sögu í laginu á safnplötunni.
Hollívúdd hætti störfum líklega síðsumars.














































