Afmælisbörn 13. febrúar 2025

Aðalsteinn Ísfjörð

Í dag er eitt afmælisbarn á lista Glatkistunnar:

Aðalsteinn Ísfjörð (Sigurpálsson) harmonikkuleikari og múrarameistari hefði átt afmæli þennan dag en hann lést árið 2022. Aðalsteinn sem var Húsvíkingur kom víða við á sínum ferli sem harmonikkuleikari, gaf út sólóplötur og í samvinnu við aðra, og lék með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. Þar má nefna sveitir eins og Hljómsveit Illuga, Víbra, Húsavíkur-Hauka og GH kvartett en hann kenndi enn fremur á harmonikku við Tónlistarskólann á Húsavík og var einn af stofnendum Harmonikkufélags Þingeyinga.

Vissir þú að þegar Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík var hún yngst allra til að hafa gert það?