
Bergsveinn Arilíusson
Á þessum degi eru afmælisbörnin fimm á skrá Glatkistunnar:
Bergsveinn Arilíusson söngvari fagnar fimmtíu og tveggja ára afmæli í dag, hann var áberandi á árunum fyrir og um aldamótin og söng lengst af með hljómsveitinni Sóldögg en einnig með Pöpum. Áður hafði hann vakið athygli með Ðí Kommittments og Acid juice, og 1993 kom út platan Kærleikur sem hafði að geyma gömul lög sungin af ungum og efnilegum söngvurum, þar söng hann tvö lög. Þá á Bergsveinn eina sólólpötu að baki og söng nú síðast með hljómsveitinni Kolsýru.
Eyþór Rafn Gissurarson á sextíu og þriggja ára afmæli á þessum degi en hann hefur komið víða við á sínum ferli. Hann á að baki eina sólóplötu, Tónbrá sem kom út 2016 en hefur einnig leikið á gítar með fjölmörgum hljómsveitum í gegnum tíðina s.s. Ironside, Grettistaki, Sirka, Baggabandinu og Hljómsveit Sveinbjörns Dýrmundssonar.
Friðbjörn G. Jónsson tenórsöngvari er áttatíu og níu ára gamall í dag. Hann er fæddur í Skagafirðinum en hefur búið syðra mest alla sína ævi, hann söng á sínum tíma með fjölmörgum kórum og kom reyndar hér fyrrum einnig fram sem einsöngvari, m.a. ásamt Sigfúsi Halldórssyni. Þá má heyra söng Friðbjörns á nokkrum plötum, m.a. á breiðskífunni Þar átti ég heima ásamt Hljómsveit Guðjóns Matthíassonar, sem kom út árið 1973.
Steinþór Steingrímsson píanóleikari hefði einnig átt afmæli á þessum degi. Steinþór var fæddur árið 1929 og hann lék með mörgum hljómsveitum um miðbik síðustu aldar, hér eru nefndar sveitir eins og GO kvintett, Hljómsveit Björns R. Einarssonar, Hljómsveit Svavars Gests og KK sextettinn auk þess sem hann starfrækti hljómsveitir í eigin nafni. Steinþór lést 2024.
Og að síðustu er hér nefndur Elfar Berg Sigurðsson píanóleikari (1939-2011) sem átti einnig þennan afmælisdag, hann starfaði einna lengst með hljómsveitinni Lúdó og Stefáni / Lúdó sextett og lék á plötum þeirrar sveitar en starfrækti líka eigin hljómsveitir, Tríó Elfars Berg og Hljómsveit Elfars Berg.
Vissir þú að Ásdís Rán og Ósk Norðfjörð starfræktu dúettinn The Blondies árið 2011?














































