
Björgvin Halldórsson
Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:
Hafnfirðingurinn Björgvin (Helgi) Halldórsson söngvari, gítar- og munnhörpuleikari, eða bara Bo Hall er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Hann hefur eins og allir vita gefið út ógrynni platna (á fjórða tug) og verið áberandi á jólalagatímabilinu en hann hefur aukinheldur sungið með hljómsveitum eins og Hljómum, Ðe lónlí blú bojs, Brimkló, Ævintýri, Hjartagosunum, Sléttuúlfunum, Bendix, Change, Flowers og HLH-flokknum auk þess að starfrækja eigin sveit. Björgvin var framan af áberandi í undankeppnum Eurovision keppninnar og fór reyndar sem fulltrúi Íslands til Írlands 1995 með lagið Núna / If it‘s gonna end in heartache. Hann hefur einnig komið að upptökustjórnun, kvikmynda- og leikhústónlist, lagasmíðum og hljóðsetningu svo fátt eitt að auki sé upp talið.
Einnig á tónlistarmaðurinn Óskar Ingi Thorarensen afmæli í dag en hann er sextíu og sjö ára gamall. Óskar sem er raftónlistarmaður hefur gengið undir nafninu Jafet Melge en einnig starfað með og gefið út plötur með sveitum og gjörningahópum eins og Sköllóttu trommunni, Stereo Hypnosis og Inferno 5
Þá á Elínborg Halldórsdóttir sem þekktust er undir nafninu Ellý í Q4U sextíu og þriggja ára afmæli á þessum degi. Ellý söng sem kunnugt er með pönksveitinni Q4U sem vakti mikla athygli í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík en sú sveit hefur gefið út nokkrar plötur. Þá hefur hún einnig starfað með sveitum eins og Þetta er bara kraftaverk, Önnu og gröfurunum, The Swinging zombies og Purpurarauðum demöntum.
Vissir þú að Olufa Finsen stjórnaði litlum kór sem söng kantötu eftir hana við útför Jóns Sigurðssonar 1880?














































