Blúshátíð í Reykjavík 2025

Blúshátíð í Reykjavík hefst í dag en hátíðin snýr aftur til síns heima á Hilton Reykjavík Nordica, hátíðin er haldin samkvæmt hefð í dymbilvikunni fyrir páska. Á dagskrá eru bæði erlendar og innlendar blússtjörnur en að lokinni formlegri dagskrá verður Klúbbur Blúshátíðar þar sem tónleikagestir geta notið lifandi tónlistar í afslöppuðu umhverfi.

Tónlistardagskráin verður með eftirfarandi hætti:

16. apríl – Hilton Reykjavík Nordica
Bubbi Morthens ásamt Gumma Pé og Davíð Þór
Leburn Maddox
Fríða Dís
GG Blús
Klúbbur Blúshátíðar

17. apríl – Hilton Reykjavík Nordica
Carolyn Wonderland & Shelley King Duo
Vinir Dóra kveðja
Steini Hjálmur
Blúsband Óskars Loga
CC Fleet Blues Band
Klúbbur Blúshátíðar

Verð Blúshátíðar í Reykjavík 2025 verða:

Eitt kvöld: 7.900 kr.
Blúsmiði – njóttu beggja kvölda! 12.900 kr. 

Opnum dyrnar kl. 19:00 – Hátíðin hefst kl. 20:00!
Ekkert aldurstakmark! – Allir velkomnir.

Miðasala hér