Álfablokkin

Álfablokkin
(Lag og texti: Kristján Kristjánsson KK)

Í álfablokkinni bjó
lítil stúlka og mjó,
hún átti sér draum.
Suður með sjó
þar álfadrengurinn bjó.

Ein var hængur þó á,
hún fékk ei drenginn að sjá
því mamma var þver
og pabbi var skver
því fer sem fer.

Babú babú,
hætta á ferð.
Babú babú,
svona er að skapa þjóðfélagsþegn.

Bæði vöruðu við,
þau grettu og yggldu sig,
það skeikar á sköpum
sama er mér,
og hún skellti á eftir sér.

Eitt sinn upp hún stóð
með halelúja hljóð,
hún hafði þá séð
eitthvað sætt,
eitthvað bitastætt.

Babú babú,
hætta á ferð.
Babú babú,
svona er að skapa þjóðfélagsþegn.

Ó mamma má ég fá
drenginn minn að sjá,
ég á eftir,
verð ekki sein
en hún kom ekki heim.

Af þessu það má læra
húsbændur og hjú,
allir eru skrýtnir
og líka þú.
 
[af plötunni KK band – Hótel Föroyjar]