Augun mín
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Líttu ekki í augun mínl
Litlaus villtu þau stúlkum sýn.
Þær sögðu þau hrein sem brúðarlín.
Sjá svart tóm við þér gín.
Kysstu varir mínar varlega.
Varastu allt það fallega,
sem rignir úr spilltum munni.
Það rífur sem þyrnirunni.
Lifað hefur áður langar nætur Rússlands.
Leið þín stefnir þangað, það sýnir lófinn þinn.
Við þokuslungna vegi vættir stíga dans.
Varast skaltu að stoppa þó fölva slái á kinn.
Heitur titraði barmur þinn.
Heitur votur var kossinn þinn.
Ástin döggvar augu þín.
Ástin glepur sýn.
Það heimsækja með draumar í hyldýpið mitt svarta.
Ég hræðist ekki framar þann álaga dóm.
Áttavilltur geng ég oft um holar nætur.
Ein átt þú að hljóta mitt dimmrauða blóm.
Horft hef ég í augu þín.
Hulin bakvið hrímgrá ský.
Birtust mér þar örlög mín.
Blástjörnum tveimur í.
[af plötunni Bubbi Morthens – Frelsi til sölu]














































