Augun mín
(Lag og texti: Elín Hall)
Leggur seint af stað
því þú veist alveg vel hvað þú gerir mér
gamalt far.
En ég veit að þú vilt ennþá það sama og ég
og hvað
ef þig líkar ekki tal, ég skal ekki segja neitt.
Þori að koma nær,
ert búinn að flúra þig allan á höndunum.
Reykir tvær
og ég veit að nú fer allt úr böndunum
og þær sem þig dá og sem þig þrá
Þær fá ekki að vita neitt.
Allt sem að augun mín sjá,
bara hvernig þú hreyfir þig.
Þegar þú veist alveg hvað ég vil fá
og þú veist hvernig þú deyfir mig
oh…
Þekkjum þetta of vel,
ég vil þig, þú vilt mig og svo sleppum við.
Sama hver,
þú ert sá eini sem að ég kem aftur til
og ég veit að sama hvað þú reynir,
hættir ekki að hugsa um mig.
Allt sem að augun mín sjá…
Vil bara að þú sjáir mig.
Vil að þú sjáir bara mig.
Sama hvað ég sé bara þig…
Allt sem að augun mín sjá…
[af plötunni Elín Hall – Með öðrum orðum]














































