Austur

Austur
(Lag / texti: Sigurjón Kjartansson / Óttarr Proppé)

Langar til Tókýó
að sjá vin minn Jón,
komast á æðra stig.
Tókýó mig langar til.

Afar fallegt er í Tókýó,
stutt að fara beint til Kíótó.
Gættu þín á öllum glæpamönnum þó.
Þeir eru fjölmargir í Tókýó.
Í Tókýó eru engin jól.
Heimamenn í leikhúsum hanga þó
skemmta sér við söng og dansasjó.

Langar til Singapore
því þar er alltaf vor,
stelpurnar sætar mjög.
Komast vil ég í fjör.

Afar fallegt er í Singapore,
stelpurnar þar eru ekkert slor.
En væri ekki betra að bíða fram á vor
og sjá tónleikana með Oxtor.
Dálítið mikið er þó verra þar
að alltof margir eru sjúkdómar,
heldur fleiri en í Zanzibar.

Ég þrái Austurlönd.
Mér halda engin bönd.
Mig langar voða að vera þar
– verð að fá mér far.

[af plötunni Ham – Lengi lifi]