Ávallt viðbúinn

Ávallt viðbúinn
(Lag / texti: Baldur Ragnarsson / Baldur Ragnarsson og Sævar Sigurgeirsson)

Er ég sá þig fyrst í rútunni varð ég strax voða
viss um að frekari kynni þyrfti að skoða.
Ég fengi nú eflaust að forvitnast um þína hagi
í fimm daga massífu skátaferðalagi.

Ég reyndi að ganga í augun á þér strax við eldinn.
Uppgerðarhrollur var fínn til að samnýta feldinn.
Ponsjóið var bara hlýtt og mér hlýnaði um rætur.
Ég held að þér hafi jafnvel þótt ég smá sætur.

En þá fann ég fleyg og fyrst pínu beyg
við flöskunni að deila, myndirðu beila?
Ég sýndi þér hann og undireins varstu öll á iði,
já og eftir það léstu mig barasta aldrei í friði.

Við syngjum „heila seila“, við syngjum „ging gang, heila seila“.
Hljóður í hafi nú röðulluinn rennur,
þú roðnar og ég býð þér sopa á ný.

„Heila seila“, við syngjum „ging gang“, heila seila“.
Já, þig vil ég heila soldið að seilast í ókomna framtíð með þér einni
gúllí og vassa og ging gang og öllu því óhikað deila – já deila.

Þýtur í laufi og vaka enn vinir saman
vodkanum hjá, það er söngur, glaumur og gaman.
Við losum í hita frá varðeldi vínrauða klúta,
verðum svo feimin og tölum soldið um hnúta.

Því ég var með fleyg og fyrst pínu beyg
við flöskunni að deila, myndirðu beila?
Ég sýndi þér hann og undireins varstu öll á iði,
já og eftir það léstu mig barasta aldrei í friði.

Við syngjum „heila seila“, við syngjum „ging gang, heila seila“.
Örar nú blóðið um æðarnar rennur
og eldurinn bjarma á kinnar slær.

„Heila seila“, við syngjum „ging gang“, heila seila“.
Já, þig vil ég heila soldið að seilast í ókomna framtíð með þér einni
gúllí og vassa og ging gang og öllu því óhikað deila – já deila.

[á plötunni Ljótu hálfvitarnir – Ljótu hálfvitarnir [4]]