Ég fer í Sjallann
(Lag / texti: Stefán Kjartansson / Einar Kristjánsson)
Þegar burt er veturinn víkur úr kinn,
þá vaxandi þróast í mér kvensemin.
Og þegar svo hilla í flöskuna fer,
ég finn að ég alls ekki get stjórnað mér.
Og hopp og hí og hí og hopp og hí og hí
og trall lall lall la,
ég fer í Sjallall lallann, ég fer í Sjallall lallann.
Og hopp og hí og hí og hopp og hí og hí
og trall lall lall la,
ég fer í Sjallall lallann í kvöld.
Og þegar ég timbraður rumska í raun
af reykingum miklum og brennivínsdaun,
þá þrái ég vatnið en vil ekki vín
og vil bara sofa uns dagurinn dvín.
Og hopp og hí og hí og hopp og hí og hí
og trall lall lall la,
ég fer í Sjallall lallann, ég fer í Sjallall lallann.
Og hopp og hí og hí og hopp og hí og hí
og trall lall lall la,
ég fer í Sjallall lallann í kvöld.
[af plötunni Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar – Grásleppu Gvendur]














































