Ég sé um hestinn
(Lag / texti: erlent lag / Rúnar Júlíusson)
Heyrðu heillin!
Leyfðu mér að kíkja aðeins á nýja hnakkinn þinn.
Við ættum jafnvel að bregða honum á folann minn.
Við skulum festa hann mjög, mjög vel
því við viljum ekki að þú dettir af baki.
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn.
Við skulum hleypa á skeið.
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn.
við skulum fara í útreið reið.
Út í myrkrið, meðfram ánni,
fram hjá hunangshlöðunni.
við munum ríða, en sú blíða,
þar til örlar á dagsbirtunni.
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn.
Við skulum hleypa á skeið.
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn.
við skulum fara í útreið reið.
Heyrðu rýjan mín!
Eigum við ekki að staldra við aðeins,
mig langar aðeins til þess að hvíla folann.
Þú veist að það er algjör óþarfi
að hjakka svona á nýja hnakknum þínum.
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn.
Við skulum hleypa á skeið.
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn.
við skulum fara í útreið reið.
Út í myrkrið, meðfram ánni,
fram hjá hunangshlöðunni.
við munum ríða, en sú blíða,
þar til örlar á dagsbirtunni.
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn.
Við skulum hleypa á skeið.
Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn.
við skulum fara í útreið reið.
[m.a. á plötunni Lagasafnið 7 – ýmsir]














































