Eitt lag enn (Eurovision – Ísland 1990)
(Lag / texti: Hörður G. Ólafsson / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
Með þér verð ég eins og vera ber
alveg trylltur, kemst í takt við þig,
þú tælir mig.
Ég fer eftir því sem augað sér
þegar hugur girnist heimta ég,
verð hættuleg.
Eitt lag enn, ekta sveiflu og hér
þreytist enginn, þú skalt dansa
það sem eftir er.
Einn takt til, tónar leika sér að
því sem heillar mig og hæfir beint í hjartastað.
Hjá mér, enginn spurning um það er
þegar mætumst við á miðri leið,
ég magna seið.
Það er ofsa fjör sem fylgir þér
svo ég einhvern veginn umturnast,
fæ æðiskast.
Eitt lag enn, ekta sveiflu og hér
þreytist enginn, þú skalt dansa
það sem eftir er.
Einn takt til, tónar leika sér að
því sem heillar mig og hæfir beint í hjartastað.
Ég er frjáls í faðmi þér,
við förum hvert sem er.
Látum töfra lífsins taka‘ af okkur völd.
Eitt lag enn, ekta sveiflu og hér
þreytist enginn, þú skalt dansa
það sem eftir er.
Einn takt til, taflið snýst um það eitt
að við höldum áfram hraðar, hikum aldrei neitt.
Að við höldum áfram hraðar nú,
hikum aldrei ég og þú við neitt.
[m.a. á plötunni Stjórnin – Eitt lag enn]
