Ekki gleyma mér

Ekki gleyma mér
(Lag og texti: Elín Hall)

Langur og erfiður vetur,
hann birti upp er fann ég þig.
Þú ert sá eini sem að getur
lífgað og glatt upp á mig.

En á milli okkar dofnaði styrkur
og dagarnir nóttum urðu að.
En ef það yrði aldrei myrkur
sæjum við ekki stjörnurnar.

Hugsaðu um mig þegar tekið er að rökkva.
Ég hef saknað þín.
Ég reyni okkar vöndum að sökkva
ef þú bíður mín.
Leiddu mig þegar augun mín vökna,
ég get launað þér.
Á morgun skyldi’ á ást okkar slökkna,
ekki gleyma mér.

Erfitt er að ákveða hvort að þú
sért virði þessa sársauka
þegar staðreyndin var alltaf sú;
við vissum að þetta myndi enda.

Ég vona að þú haldist glaður
og gleymir angurværð og gráti.
Þau segja að hamingjan sé ekki staður,
hamingjan sé ferðarmáti.

Hugsaðu um mig…

[af plötunni Elín Hall – Með öðrum orðum]