Færeyjablús

Færeyjablús
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Hornafjörður, Vestmannaeyjar, Eskifjörður, Bolungarvík,
Norðfjörður, Færeyjar, alltaf enda ég í Reykjavík.

Þræla í fiski, púla á sjónum,
draga línu, kútta fisk.
Sofa í lúkar eða í verbúð,
éta af drullugum disk.

Sárir gómar, flegnar hendur,
vöðvar gráta, vilja ekki meira‘
en áfram er þrælað, áfram er púlað,
hugsað um hetjur Hemmingway.
Þegar tími gefst til aflögu
er drukkið, reykt hass.
Það er slegist, það er riðið
austur á Fjörðum eða norður í rass.

Þegar í bæinn ég mæti aftur,
svíf inn í kúltúrinn,
menningarvita sitja á Mokka
spjallandi um heimsmálin.

Hornafjörður, Vestmannaeyjar, Eskifjörður, Bolungarvík.
Norðfjörður, Færeyjar, alltaf enda ég í Reykjavík.

[af plötunni Bubbi Morthens – Ísbjarnarblús]