Finn þetta er nóg
(Lag og texti: Elín Hall)
Ég mun ganga upp með vegi mínum greiða,
bera það á bak sem fyrir rennur.
En ég vagga tíma sem ekki gleymast,
brothætt eins og barn sem eflaust var ég.
Orð mín þögul man ég ómandi ópin.
Þessi eina rödd sem enn ég hræðist.
Bar mig niður þungur sjálfsástarflóttinn.
Hvað orðið var að mér, ég spyr ennþá í dag.
Einatt dregst ég inn í fortíðartómið.
Þá erfitt að er hugsa sér að veröldin skáni
en þú segir að ég sé komin til að lifa,
rödd þín ein, mitt ratljós er.
Ég heyri hann telja
en ég finn ekkert skjól
því að hugur minn þýtur eins og stjörnuhrap.
Veit hann mun mig velja
ef hann fær ekki nóg,
kominn aftur af stað.
Það sem að sárin mín stoppa ekki
reynist mér eins og að endi það hafi ekki
hvað sem gegnur á,
það mun aldrei þreyta neinn sem mig
er kemur aftur á ný.
Og þó mig vantaði ekki neitt,
ég ætti allt
kemur aftur eins og vanalega að finna nýja veikleika.
Komið aftur
Ég vildi gefa þér allt sem ég var og er
vil geta gefið þér allt sem ég var og er
en ég vil segja þér alveg hvað það er.
(allt sem ég var og er, hvað það er, fyrir mér)
Ég finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er nóg nóg.
Ég finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er nóg nóg.
Ég finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er nóg nóg.
Ég finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þett
Ég heyri hann telja
en ég finn ekkert skjól
því að hugur minn þýtur eins og stjörnuhrap.
Veit hann mun mig velja
ef hann fær ekki nóg,
kominn aftur af stað.
Og þegar borgin færist
get ég kastað mæðinni
en ég veit að bráðum
verða húsin komin aftur.
Og ég þekki þetta
sama rót og sama tal.
Það huga mínum stal
en mun koma mér í lag.
En ég veit ég get orðið
það sama aftur, sama hvað hann ber á borðið.
Sama hversu hátt hann nær að tala.
Sama hvar ég er, hvernær sem er,
ég veit að hann fær ekki’ á þessu að ala.
Legg frá gamla vana
þegar ég finn hvað öllum öðrum virðist sama.
Og fagna mér og þér.
Ég finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er, finn þetta‘ er nóg nóg…
[af plötunni Elín Hall – Með öðrum orðum]














































