Glerbrot
(lag og texti Magnús Thorlacius)
Brýst í gegnum gler
Lýsir upp og fer
Skilur eftir brotin hér
Innan í mér
Sólargeislar sem hún ein ber
Strýkur vangann stutt
Flýgur síðan burt
Sleppir mér á hæsta tind
Fer niður með hinn
Ómar bergmál þegar það er spurt?
Ég roðna og sver ég kem aldrei framar heim
Núna er samviskan ei lengur hrein
Vandræðalegri verða þeir ekki en ég
Lof mér að sjá þína spegilmynd í mér
Stingur sér til sunds
Hamingja um stund
Þar til ég er einn á bát
Og strýk burtu tár
Regndroparnir dynja á minni sál
Ég roðna og sver ég kem aldrei framar heim
Núna er samviskan ei lengur hrein
Vandræðalegri verða þeir ekki en ég
Lof mér að sjá þína spegilmynd í mér
Ég roðna og sver ég kem aldrei framar heim
Núna er samviskan ei lengur hrein
Vandræðalegri verða þeir ekki en ég
Lof mér að sjá þína spegilmynd í mér
[af plötunni Myrkvi – Rykfall]














































