Hatrið mun sigra (Eurovision – Ísland 2019)

Hatrið mun sigra (Eurovision – Ísland 2019)
(Lag / texti: Einar Hrafn Stefánsson, Klemens Nikulásson Hannigan og Matthías Tryggvi Haraldsson)

Svallið var hömlulaust.
Þynnkan er endalaus.
Lífið er tilgangslaust.
Tómið heimtir alla.

Hatrið mun sigra.
Gleðin tekur enda.
Enda er hún blekking.
Svikul tálsýn.

Allt sem ég sá.
Runnu niður tár.
Allt sem ég gaf.
Eitt sinn gaf,
ég gaf þér allt.

Alhliða blekkingar.
Einhliða refsingar.
Auðtrúa aumingjar.
Flóttinn tekur enda.

Tómið heimtir alla.

Hatrið mun sigra.
Evrópa hrynja.
Vefur lyga.
Rísið úr öskunni,
sameinuð sem eitt.

Allt sem ég sá.
Runnu niður tár.
Allt sem ég gaf.
Eitt sinn gaf,
ég gaf þér allt.
Allt sem ég sá.
Runnu niður tár.
Allt sem ég gaf.
Eitt sinn gaf,
ég gaf þér allt.

Ég gaf þér allt.
Ég gaf þér allt.
Hatrið mun sigra.
Ástin deyja.
Ég gaf þér allt.
Hatrið mun sigra.
Gleðin tekur enda.
Ég gaf þér allt.
Enda er hún blekking.
Svikul tálsýn.
Hatrið mun sigra.

[m.a. á plötunni Söngvakeppnin 2019 – ýmsir]